HushHybrid hljóðvistarklefi

Hybrid er klefi fyrir 1 en hannaður með það að leiðarljósi að vera meira en hinn hefðbundni símaklefi. Í honum er lítill sófi og borð í vinnuhæð svo hægt sé að sinna vinnu með t.d. fartölvu og einhverjum pappírum, mús eða álíka. Vinnuaðstaðan er mjög þægileg og hentar líka einkar vel fyrir fjarfundi. Hægt er að fá klefann með festingum og tengingum fyrir skjá á vegginn fyrir framan notandann.

Góð og stillanleg loftræsting og vönduð stillanleg lýsing gera það að verkum að auðvelt er að breyta upplifuninni af því að vera inni í Hybrid klefanum. Klefinn skynjar hvenær enginn er í klefanum og skiptir þá algjörlega um loft í honum til að næsti notandi komi að honum ferskum ef fyrri notandi hafði ekki nýtt sér loftræstikerfið og loftið farið að þyngjast.

Gler í Hybrid getur verið glært eða sandblásið. Val er um liti og tegund áklæðis. Litur utan á klefanum er hvítur eða svartur og einnig er hægt að velja um liti á borðinu inni í klefanum. Hægt er að velja sérstaklega betur eldvarið efni í klefann. Í klefanum eru rafmagns- og USB tengi svo auðvelt er að hlaða allar tölvur, spjaldtölvur og síma.

Fáðu tilboð í útfærslu sem hentar þér.

Vörunúmer: HUS-BX-020 Vöruflokkar: , , Framleiðandi: