Meet klefarnir eru fundarrými sem fást í stærðum fyrir 2 – 8 manns með ýmsum möguleikum á borðum. Í Meet klefum er auðvelt að stækka og minnka klefann þar sem hann er settur saman úr einingum og auðvelt er að bæta við ef það þarf að stækka rýmið seinna meir. Hægt er að fá þá án borðs líka svo hægt sé að setja inn laust borð frá öðrum framleiðanda. Hljóðeinangrunin er góð og næði mikið til fundarhalda eða samvinnu starfsmanna við hin ýmsu verkefni.

Góð og stillanleg loftræsting og vönduð stillanleg lýsing gera það að verkum að auðvelt er að breyta upplifuninni af því að vera inni í Meet klefanum. Klefinn skynjar hvenær enginn er í inni og skiptir þá algjörlega um loft í honum til að næsti notandi komi að honum ferskum ef fyrri notandi hafði ekki nýtt sér loftræstikerfið og loftið farið að þyngjast.

Gler í Meet klefanum getur verið glært eða sandblásið. Val er um liti og tegund áklæðis. Litur utan á klefanum er hvítur eða svartur og einnig er hægt að velja um liti á borðinu inni í klefanum. Hægt er að velja sérstaklega betur eldvarið efni í klefann.

Í klefanum eru rafmagns- og USB tengi svo auðvelt er að hlaða allar tölvur, spjaldtölvur og síma en einnig er hægt að fá önnur tengi svo sem nettengi og HDMI ásamt festingum fyrir skjái.

Fáðu tilboð í útfærslu sem hentar þér

Vörunúmer: HUS-BX-012+HUS-BX-013(x2) Vöruflokkar: , , Framleiðandi: